2005 Hugleiðingar við Öskju

Bókin er ríkulega skreytt glæsilegum ljósmyndum Guðmundar Ingólfssonar sem lýsa upp og styðja textann. Bókin kemur samtímis út á fjórum tungumálum – íslensku, ensku, frönsku og þýsku – og er kjörgripur hverjum þeim sem ann íslenskri náttúru og þeirri upplifun sem fylgir því að ferðast um óbyggðir Íslands.

Texti bókarinnar fjallar um þá einstöku reynslu sem ferðalangurinn verður fyrir í þeirri óræðu og tröllauknu veröld sem Askja er. Páll leggur út af þessari áhrifaríku reynslu og dregur af henni fjölþættar ályktanir um stöðu mannsins í náttúrunni og alheiminum – en einnig í hinum „manngerða“ heimi, til dæmis í stórborg á borð við París. Askja kemur manni fyrir sjónir sem sjálfstæð veröld og opnar þar með nýjar leiðir í skynjun okkar á veruleikanum, eins og Páll bendir á: „Þegar maður kynnist slíkri veröld er maður kominn á leiðarenda. Kominn í snertingu við veruleikann sjálfan. Hugurinn opnast fyrir fullkominni fegurð og maður sér loksins um hvað lífið snýst“. Náttúruupplifun af þessum toga veitir manninum jarðsamband; ómetanleg tengsl við þann veruleika sem mannlegt samfélag – samfélag neyslu, streitu og flókinna áætlana undir merkjum ásóknar í efnisleg gæði – hvílir að endingu á. Í Öskju eru óræð öfl að verki: öfl náttúrunnar sem geta brotist út hvenær sem er og valdið mönnunum þungum búsifjum. „Askja táknar einfaldlega jörðina sjálfa, hún er jörðin eins og hún var, er og verður á meðan hún heldur áfram hringsóli sínu um himingeiminn“. Í þeirri stórbrotnu veröld sem Askja er fær maðurinn, hinn mannlegi einstaklingur, yfirþyrmandi sönnun fyrir smæð sinni, vanmætti og takmörkunum. „Fyrir atbeina slíkrar reynslu hefur líf margra manna fengið nýja vídd og tekið nýja stefnu“. Það er einmitt reynsla af þessum toga sem dregið hefur, og dregur enn, margan erlendan ferðamanninn til Íslands.

Bókin Hugleiðingar við Öskju er hvatning til ferðalanga, íslenskra og erlendra, að reyna sjálfir að skynja íslenska náttúru með þeim hætti sem bókin lýsir; en hún er líka dýrmætur minjagripur um reynslu sem fylgja mun ferðalangnum ævilangt.


Books

  • 2005 Meditations at the Edge of Askja

    Meditations at the Edge of Askja by Páll Skúlason, professor of philosophy and Rector of the University of Iceland, is richly illustrated with the magnificent photographs of Guðmundur Ingólfsson which serve to create a living background light for the text. The book, which is being simultaneously ...

  • 1999 - Saga and Philosophy

    Introduction by Paul Ricoeur
    A collection of original essays by Páll Skúlason on diverse topics, philosophically challenging, but accessible to the ordinary intelligent reader. The focus is upon issues which are relevant to daily existence; morality and values, science and technology, politics ...

Back to top